Færsluflokkur: Bloggar
20.9.2008 | 12:41
Dagurinn í dag
Ljón: Eyddu tíma í að líta geðveikt vel út. Útlitið skiptir miklu máli, ekki af því að öðrum er ekki sama, heldur líður þér best þegar þú ert ánægður með sjálfan þig.
Svona hljóðar sem sagt speki dagsins. Samkvæmt mbl. stjörnuspá. Velsnyrt er konan ánægð.
Kahlil Gibran segir um fötin að:"að miklu leyti hylja fötin fegurðina, en ekki ljótleikann.
Þið klæðist fötum til aða hylja nekt ykkar og verða óháð en þau geta orðið ykkur reiðingur og fjötrar.
Ég vildi, að þið köstuðuð oftar klæðum og gengjuð nakin í sól og sunnanþey, því að andardráttur lífsins er í sólskininu og hönd lífsins í blænum."
AA- fræðin segja okkur að lifa í deginum í dag og ekki hugsa um gærdaginn né morgundaginn. Það hefur oft komið sér vel að nota þetta motto. Ekki að ég sé að líkja AA-fræðum, Kahlil Gibran og stjörnuspeki saman. Sei,sei nei.
Er nú bara að pæla í hvernig samsuðan af þessu öllu væri, fyrirsagnir blaðanna verða eitthvað á þessa leið:" Nakin kona gekk um götur Keflavíkur í dag. Að spurð sagði konan að stjörnspá dagsins hafi sagt fyrir um að hún skyldi líta sem best út í dag. Hún sagðist taka orð Spámannsins bókstaflega og vilji láta sunnanvindinn leika við kroppinn. Þar sem hún tæki einnig orð AA-fræðanna til sín lifði hún bara í deginum í dag."
Nei, kjánarnir ykkar, ég er bara að bulla í ykkur. Get a life!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2008 | 11:53
hrottalegt ofbeldi á börnum
Guð minn góður hvað það er hræðilegt að lesa þetta. Vesalings börnin, mamman í neyslu og áverkar benda til að pabbinn skutli í þau hnífum og berji á þeim. Hefur enginn í umhverfi barnanna séð neitt athugavert? Hann er grunaður um langvarandi ofbeldi. Eru allir sofandi þarna?
Sem betur fer eru börnin komin til afa og ömmur. En "faðirinn" gengur laus á meðan að málið er rannsakað. Hvílíkur andskotans aumingi má þessi maður vera. Á varla orð til að lýsa því hvílíkt ógeð ég hef á fólki sem leggur hendur á börn. Hvernig er hægt að gera svona . Ég bara get ekki skilið það.
Ég sló einu sinni eldri dóttur mína á rassinn og ég er enn með samviskubit nærri þrjátíu árum síðar. Þar með er upp talinn minn ofbeldisferill. Hvernig ætli sálarlíf mannsins sé? Hvernig er hægt að réttlæta svona fyrir sjálfum sér og halda áfram að níðast á börnunum?
Það þarf svo sannarlega meira en getnað til að vera foreldri.
Grunur um hrottalegt líkamlegt ofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.9.2008 | 14:01
kemur sér vel
Ja hérna, hér. Þetta kæmi sér vel fyrir okkur sem höfum ekki efni á því að deyja. Það veitti ekki af svona happdrætti hér þar sem það kostar minnst hálfa millu að deyja og vera grafinn í vígðri mold. Með tilheyrarndi kaffisamsæti á eftir sem enginn getur verið þekktur fyrir að hafa ekki svona í lokin.
Þetta er auðvitað fyrir utan krónurnar sem fara í kirkjubatteríið af skattpeningunum okkar.
Helst vildi ég verða sett á bátskænu og sleppt á haf út og svo má brenna allt draslið að hætti víkinga. En það yrði að vera á Stafnesinu. Afkomendurnir sætu ekki uppi með skuldir í ofanálag við að missa ástvin.
Held ég reyni að hugsa um lífið restina af deginum.
Vann ókeypis jarðarför í happdrætti - vinningurinn er ósóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.9.2008 | 13:17
Andlaus og fattlaus
Þetta er greinilega einn af þessum dögum. Þið vitið, þegar það kviknar ekki á einni einustu peru í seríunni. En það er nú skýring á því.
Eins og ég skrifaði um í síðasta bloggi hefur mamma verið veik og í aðgerð. Góðu fréttirnar eru þær að hún var vel vakandi í morgun og flutt af gjörgæslu. Seigt í gömlu minni. Förum svo á fund með lækninum á mánudag um hvernig áframhaldið verður.
Veikindi í fjölskyldunni valda eðlilega því að maður er doldið á skjön við taktinn í lífinu. Finnst pústrar um hitt og þetta í heiminum einhvern veginn svo fjarlægir þegar ástvinur manns er veikur. En það stendu nú til bóta ef ég þekki mig rétt. Verð farin að rífa kjaft upp úr helginni spái ég.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.9.2008 | 12:02
Í biðsal dauðans
hún mamma mín er búin að vera veik og á sjúkrahúsi síðustu daga. Nú er komið í ljós að hún er veikari en við héldum. Gamla konan er með æxli í ristlinum og á að fara í aðgerð í dag. Svo núna er bara að bíða og vona það besta.
Það eru 50/50 líkur á þetta gangi allt vel. Og eðlilega jafn miklar líkur á svo verði ekki. En án aðgerðar lifir hún ekki svo það er ekkert annað að gera í stöðunni.
Hún mútta mín er sko enginn aukvisi, sterk kona sem hefur ekki hátt um sínar skoðanir öndvert við undirritaða. Kvartar ekki konan sú. Hún er á níræðisaldri og hefur því fengið tækifæri til að lifa sínu lífi öfugt við þá sem falla frá snemma. Býr enn ein og getur séð um sig sjálf með smá aðstoð og hefur ekki þurft að fara inn á stofnun sem ég er óumræðanlega þakklát fyrir.
Svo nú er bara að biðja ykkur að senda bænir eða bara góðar hugsanir til hennar og vona það besta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.9.2008 | 11:47
Nítjánda kom á óvart..
Maður hefði nú haldið að fólki væri farið að gruna hvernig börnin verða til eftir 18 stykki.
En hvað veit ég, konan er náttúrulega (:D) löngu búin að skjóta mér ref fyrir rass. Kannski er þetta allt norðanvindunum að kenna. Þetta kom mér í gott skap. Njótið.
http://www.youtube.com/watch?v=rcwn7cDQrOI
Nítjánda barnið kom á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.9.2008 | 12:31
Palin var valin...
Mikið held ég að það sé vont að vera forsetaframbjóðandi rebúpiblikana í BNA. Þetta útspil hans að velja konu sem varaforsetaefni var að mínu viti til að tryggja sér atkvæði kvenna og trúarnöttara. En bíðum nú við...
Í ljós kemur að dóttir konunnar 17 ára gömul er ófrísk! Hélt nú bara að þetta trúaða fólk gerði ekki dodo fyrr en eftir hjónaband. En þau ætla að giftast svo það er allt í lagi. Held að barnsfaðirinn sé jafngamall.
Síðan er eitthvað mál í gangi um brú sem gleypti fullt að grænum seðlum og ég kann ekki frekari deili á.
Nú hefur komið upp á borðið að verið er að rannsaka hvort fyrrverandi mágur (fyrrverandi? má þetta fólk skilja?) frúarinnar hafi verið rekinn úr starfi. Í kjölfarið á skilnaðinum við systur hennar. Tilviljun?
Hún er viss um að mengun sé ekki af mannavöldum.
Frúin ku líka hafa rekið fólk hægri, vinstri, sem henni líkaði ekki við og skipað vini í störfin þeirra. Ætli hún hafi komi til Íslands og lært við skör meistaranna hér? Ætli það sé ekki farið að fara um ellismellinn í ameríkunni.
En ég er svoddan kvikindi að það hlær í mér púkinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.9.2008 | 13:24
arfavitlaus auglýsing
Já , ég veit að ég er alger röflari en sumar auglýsingar fara svo hrikalega í taugarnar á mér. Sú sem pirrar mig þessa dagana er auglýsing um skemmtistað bragðlaukanna!
Hvað er skemmtistaður bragðlaukanna? Hvaða húllumhæ eru þá kynkirtlarnir? Nú eða endaþarmurinn? Skemmtistaður streptokokkanna? Arg.
Íslenskan er allt of myndræn til að nauðga henni svona. Sé alltaf fyrir mér tunguna á mér í brjáluðu diskó þegar ég heyri þetta. Kenwood chef.
Hætt í bili. Meira seinna. No worrys.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.9.2008 | 10:43
"Í brjósti mínu
býr ung stúlka sem neitar að deyja." Þetta eru orð sem ég heyrði um síðustu verslunarmannahelgi vestur á Snæfellsnesi. Þarna er verið að vitna í norrænan rithöfund sem ég bara man ekki hvað hét eða heitir. (veit einhver hver þetta var, þorry of miki röðvin)
Við sátum nokkrar fyrir utan Garða eftir dýrlegan mat framreiddan af stóra bróður, og sötruðum rauðvín og horfðum á sólina hella geislum sínum yfir jökulinn. Með fullt að úandi og aandi útlendingum sem komust ekki yfir það að sitja þarna úti í kvöldsólinni.
Þessi setning er alltaf að dúkka upp í hausnum á mér vegna þess að þetta er einmitt svona. Það býr svona stelpubrussa í brjóstinu á mér. Hún er helvítis frekja. Getur aldrei setið kyrr og er sífellt að rífa kjaft. Hún man ekkert eftir því að ég er miðaldra, stútungskerling.
Þekkið þið þetta stelpur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
12.9.2008 | 11:56
Það var sagt mér það..
Þessi setning er svo dásamlega vitlaus að ég varð að nota hana. Hana heyrði ég fyrst vestur á fjörðum frá nemendum mínum. En ástæðan fyrir notkun hennar hér er alveg ótengd vestfjörðum og ekki ætla ég að gefa mig út fyrir að vera málfarsperri.
Heldur það að ég rakst á skrif sem segja að dýralæknirinn eigi þrjár dætur. Það er mér stórlega til efs að hans dætur þurfi nokkurn tíma að dýfa hendi í kalt vatn. Þær fá eflaust hlut í sparisjóðum og slíku í arf. Þurfa þar að leiðandi ekki að lifa á kvennalaunum eins og pöpullinn. Þannig að það að reyna að höfða til hans sem föður er eflaust eins og skot í myrkri.
En hvað með stjórnarsáttmálann um að jafna hlut kvenna í launamálum almennt og í umönnunarstörfum sérstaklega? Hvað segja nýju siðareglurnar um það að þingmenn ( kvenmenn og karlmenn) brjóti á bak aftur kosningaloforðin sín? Til hvers að setja lög um siðareglur og brjóta grunnregluna; að við kjósum fólk til að koma á framfæri þeim málefnum sem á okkur brenna.
Ekki það að svíkja kosningaloforð sé nýtt undir sólinni. Ónei. En ég í sakleysi mínu hélt ég að þar sem félagshyggjufólk blandast við íhaldið í stjórn að kannski yrði breyting á. Skammist ykkar til að semja við ljósmæður þið landsfeður og mæður. Þetta ástand er okkur til minnkunnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar