Að sitja í meðvindi og mótvindi.

Ný íslensk orðabók:

Að segja ekki af sér=sitja í meðvindi og mótvindi.

Niðurskurður í heilbrigðiskerfi=hreppaflutningar gamlingjanna og klípa meira af ellistyrknum en nú þegar er gert. Ekki gleyma öryrkjum sem þurfa að leita lækninga fram yfir þá heilsubetri.

Táknræn launakækkun hátekjufólks=við verndum þá ríku á kostnað þeirra fátæku.

Slítum ekki  stjórnmálasambandi við morðinga=bara ef hinir gera það líka. Þorum ekki ein.

Þið eruð ekki þjóðin=ég bý hér ein.

Fjármáleftirlit=ekki meiri pening þangað, eflum sérsveitir til að berja á mótmælendum. Það á eftir að tæta smá meira.

Bankamenn=fjölnota fólk fyrir og eftir hrun.

Ég á ekki fleiri orð í bili. Framhald í næsta bloggi. 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf de Bont

Þú verður að halda áfram að setja saman orðabókina.  Mér sýnist vera rök í þessu.

Ólöf de Bont, 8.1.2009 kl. 19:22

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Jája, framhald í næstu viku.....

Rut Sumarliðadóttir, 8.1.2009 kl. 19:48

3 Smámynd: Gulli litli

Vid verdum ad standa saman; thid borgid, vid eydum!

Gulli litli, 8.1.2009 kl. 23:08

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

það er orðið flókið tungumálið okkar. Það er ágætt að fá svona skýringar Rut og svo er það "við vorum kosin af almenningi"=helvítis fokking fokk.

Málsháttur Gulla er ansi táknrænn fyrir ástandið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 9.1.2009 kl. 01:43

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Gaman að snúa við orðum  -og sólarhring...

Skammdegiskveðjur, HHS

Hildur Helga Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 05:01

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Gulli þú er óborganlegur!

Bíbí HFF-HFF-HFF

HH orðaleikir í miklu uppáhaldi hér á bæ sem og að kúra á morgnana.

Rut Sumarliðadóttir, 9.1.2009 kl. 11:05

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Þið fáið að kjósa á fjögurra ára frest, er það ekki nóg= hér víkur enginn þó allt sé komið í klósettið.

Rut Sumarliðadóttir, 9.1.2009 kl. 11:07

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Dóra mín, ég er að drepast úr andlegri leti.

Rut Sumarliðadóttir, 9.1.2009 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband