18.2.2009 | 12:49
Partý, ég bíð!
Og sendi svo reikninginn til sveitafélagsins. Ég ætla að bjóða öllum þeim sem sammála mér eru í pólitík í flott partý! Léttvín og smáréttir í boði. Við ætlum að ræða aðhald og sparnað á krepputímum. Svo getum við mært hvort annað í svona einn, tvo tíma og að partýinu loknu sendi ég reikninginn á sveitarfélagið.
Það getur varla nokkur maður sagt að það sé eitthvað athugavert við þetta, er það? Þetta er ekki nema svona 90.000 kall, það er enginn peningur. Eins og framfærsla á einum aumingja hjá Féló í mánuð. Ekkert til að vera með fuml og faml um, er það?
Ég er sko búin að fá nóg af þessum skríl sem skilur ekki að maður lifir ekki á brauði einu saman. Það þarf að lyfta upp andanum líka. Ekkert gerir það eins vel og ærlegt partý með skoðanasystkinum. Þið eruð hér með boðin! Partýið verður haldið í Leikhúsi fáránleikans, Lísa í Undralandi verður skemmtanastjóri. Vær só gúð:
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 892
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við erum alltaf sammála Rut......má ég koma?
Sigrún Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 18:18
Sigrún mín, þú ert efst á lista!
Rut Sumarliðadóttir, 18.2.2009 kl. 18:40
Heyrðu, ég mæti. Tek taxa, bærinn borgar!
Soffía Valdimarsdóttir, 19.2.2009 kl. 13:52
Ég spyr nú ekki bara kem. svo sammála þér maður er alveg búin að fá nóg.
Knús til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.2.2009 kl. 14:21
Verið velkomnar dömur mínar.
Rut Sumarliðadóttir, 19.2.2009 kl. 14:40
Ég get nú alveg séð um veitingarnar, er með blátt visakort í eigu borgarinnar.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 19.2.2009 kl. 19:04
Málinu reddað.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.2.2009 kl. 19:22
Imba, þú færð greitt undir borðið, uss, ekki segja neinum!
Rut Sumarliðadóttir, 19.2.2009 kl. 19:33
Rjómabollur og nóg að drekka í boði Hönnu Birnu. Mætum í Ráðhúskaffi klukkan 16:30 á laugardag og sunnudag. Við kjöftum samt ekki frá.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 19.2.2009 kl. 21:06
Jerímías er þetta í Reykjavik, jæja kem bara seinna.
en góða skemmtun.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.2.2009 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.