18.1.2009 | 12:34
Fólksflótti.
Jæja, þá er flóttinn mikli hafinn, færri hausar til að borga þjóðarránið. Skrýtið að fólk vilji ekki búa hér eða þannig. Mikið skil ég þetta vel að fólk vilji ekki borga meira og fari úr landi. Held því miður að við eigum eftir að sjá meira af þessu.
Framsóknarmaddaman er risin úr öskustónni í líki ungra, hvítra karlmanna í jakkafötum. Eru hinir þrír ekki kvenkyns? Hver skyldi hafa verið við völd undanfarna áratugi? Jú, maddaman sjálf. En nú birtist hún hvítþvegin og algerlega laus við spillingu. Haggi?
Geir er sár og reiður út í stjórnina sem hann veitir forystu. Aldrei hægt að stóla á neinn. Alveg ömurlegt að hún hafi ekki hlustað á tal lærðra manna bæði hér og erlendis frá. Haggi?
Arg og garg indeed. Þetta er leikhús fáránleikans. Held ég sé búin með skammtinn í bili. Afsakið meðan ég æli.
Aukinn útflutningur á búslóðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið helviti er gaman að lesa þig Rut min
Kristín Gunnarsdóttir, 18.1.2009 kl. 14:26
Verst er að það er dýrt að flytja þetta með sér... en kostar sáralítið hér úti ... og hægt að fá flottar mublur ... bæði notaðar og nýjar...
Ég er ennþá að naga mig í handabökin á því af hverju ég tók með mér fullan gám af drasli þegar ég flutti hingað út á sinum tíma...
Kærleikur til þín Rut
Dóra, 18.1.2009 kl. 17:56
Mikið asskoti er ég ánægð með það Kristín1
Dóra, ég gerði það líka, borgar sig ekki, betra að selja draslið og kaupa nýtt úti.
Rut Sumarliðadóttir, 18.1.2009 kl. 18:12
Nú eru sökudólgarnir fundnir loksins.
http://annaeinars.blog.is/blog/annaeinars/
Á blogginu hennar Önnu Einars stendur það svart á hvítu.
Ég ætla ekki að kaupa neitt, ég er svo lánsöm að vera bölvuð drusla og henda aldrei neinu, þannig að nú fer ég að sauma upp úr gömlu og versla með það í Kolaportinu.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.1.2009 kl. 20:17
Á maður að fara að flytja sjálfan sig og fjölskylduna til Langtíburtistan?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.1.2009 kl. 20:30
Tek undir með Kristínu Það er assgoti helvíti gaman að lesa það sem þú skrifar Rut Við lesturinn kviknaði allavega á einni peru í huga mér sem var slökkt á og ég þakka þér bara fyrir Rut þessi 100 wött sem mig vantaði og ég bara óska þér alls hins besta
Máni Ragnar Svansson, 18.1.2009 kl. 20:47
Imba mín, takk fyrir þetta, ég er líka mjög nýtin kona.
Jóka, hljómar vel, Langtíburtuland. Ummm.
Máni, (afskaplega er þetta fallegt nafn) takk og sömuleiðis félagi.
Rut Sumarliðadóttir, 18.1.2009 kl. 21:38
Rut Sumarliðadóttir, 19.1.2009 kl. 18:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.