Kommonistadrullusokkur!

Já, halló Hafnarfjörður, ætlar þú að reka okkur heim fasistadrullusokkur? Ekki víkur þú þó þú vinnir í ríkisstofnun sem hefur tekið fullan þátt í að setja þjóðina á hausinn. Líttu þér nær félagi.

Er kannski málið að það er farið að senda fólk inn í mótmælendahópinn til að skapa sundrung. Það skyldi þó aldrei vera. Þá er hægt að kalla okkur skríl ekki satt.

Drullaðu þér sjálfur heim, hvað ert þú og þínir samstarfsmenn ekki búnir að skemma. Farið hefur fé betra.

Kommonistadrullusokkakerlingin. 


mbl.is Mótmælendum ógnað á gamlársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Mér sýnast þær blikur á lofti að ribbaldar úr hópi sjálfstæðismanna séu að reyna að stofna til óeirða meðal mótmælenda. Það var hlálegt að horfa upp á hvernig þeim mistókst tilburðir sínir vegna rólyndis mótmælenda. Við getum verið stolt af mótmælendum sem eru ekki ribbaldar á borð við þessa sjálfstæðismenn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.1.2009 kl. 11:57

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þessi fj. NOVA auglýsing skyggir alltaf á textann hjá þér. Hún er inni á þínu svæði en ekki út í kantinum. Þú ættir að láta mbl kippa því í lag.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.1.2009 kl. 11:59

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Sammála, greinilega snjall hagfræðingur á ferðinni eins og dæmin sanna

Takk fyrir ábendinguna, sé þetta ekki sjálf þegar ég opna hana.

Rut Sumarliðadóttir, 3.1.2009 kl. 12:02

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það eru ýmsir sem hvetja til stofnun hvítliðasveita m.a. á blogginu mínu. Kannski verður fjör hérna þegar líður á árið?

Sigurður Þórðarson, 3.1.2009 kl. 12:02

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeir voru ótrúlegir þessir vesalingar.....algerlega mishepnuð tilraun til að æsa okkur þessa "kommanistadrullusokka"

Sigrún Jónsdóttir, 3.1.2009 kl. 12:04

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Eigum við ekki bara að segja að af ávöxtunum skulum við þekkja þá eins og hljómaði í gamalli auglýsingu sem við komonistadrullusokkarnir munum eftir?

SÞ held að það eigi eftir að verða mun meiri harka í mótmælum en verið hefur.

Sigrún, ekki alveg, varð alveg öskureið þegar ég loksins rak augun í myndskeiðið þar sem þeir hrinda konunni og sparka í mannin. Enda svo mikill kommonisti.

Rut Sumarliðadóttir, 3.1.2009 kl. 12:11

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Svo á líka að banna ófrítt, feitt reikingafólk;  Allt réttdræpt !

Enda voru þetta svo einstaklega fagrir og sjarmerandi menn, sem þarna blönduðu sér í hópinn...  -að snapa fæting !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 12:28

8 Smámynd: Gulli litli

Afar mínir voru báðir kommúnistar......þannig að ég er....

Gulli litli, 3.1.2009 kl. 12:37

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

HH einmitt, drita niður þá sem eru bólugrafnir í leiðinni eða með falskar!

Gulli mínir líka þeir vildu líka mannréttindi!

Rut Sumarliðadóttir, 3.1.2009 kl. 12:44

10 Smámynd: Ólöf de Bont

Það er kominn æsingur í fólk.  Sumir alltaf tilbúnir til að snapa fæting eins og þessi með sígaréttuna og hans meðreiðarsveinn... vil þó ekki kalla þá feita og sígaréttureikinga því það eru fordómar  - en það er greinilegt að mennirnir voru í leit að slagsmálum.

Ólöf de Bont, 4.1.2009 kl. 13:24

11 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Það er einmitt það sem ég óttast að það verði mun meiri harka í mótmælum. Held annars að þessi pótentáti Davíð lýsi því hvaða hug þeir bera til fólks.

Rut Sumarliðadóttir, 4.1.2009 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband