Ég lebb!!

Það eru komnir ansi margir dagar síðan ég hef haft kraft til að setjast við tölvuna og skrifa nokkarar línur. Ég, eins og restin af þjóðinni er í djúpum skít og timburmönnum en það væri að bera í bakkafullan lækinn að tala meira um ástandi á landinu mínu.

Við höfum setið á rökstólum nokkrar vinkonur um hvað við getum gert til að reyna að sporna við því að fara á hausinn og missa það litla sem okkur hefur tekist að öngla saman á síðustu og verstu tímum. Og halda geðheilsunni í leiðinni.

-Spilakvöld einu sinni í viku. Kostar ekkert og þar sem við erum flestar haldnar alzheimer light, eflir minni og rökhugsun.

-Bjóðum hvorri annarri í mat. "Heyrðu Jóna, mér var gefinn ýsusporður, við borðum hjá mér í kvöld"

-Förum í geymslurnar og gerum jólahreingerningu á ýmsu dóti sem safnar bara ryki og er til óþurftar. Höldum síðan bílskúrssölu og reynum að fá nokkrar krónur í vasann. Erum búnar að fá vilyrði fyrir bílskúr sem snarlega var nefndur "Kreppukofinn" og byrjaðar á að plana hvernig við nýtum aðstöðuna.

-Ein vinkonan átti verslun og situr uppi með dót og drasl úr því ævintýri.

-Önnur okkar er alltaf með nefið ofan í pottum og hún hefur verið að gera tilraunir með hundanammi og er dottin ofan á góða og ódýra lausn. Búið að prófa afurðina við góðar undirtektir. Þar er kominn annar varningur til sölu.

-Ég er saumakonan og á nokkra dúka tilbúna til sölu, ætla að bæta í safnið fram í desember.

Svo eftir áramót með gríðarlegan gróða í vösunum förum við til London og setjum aurinn í breskan banka.LoL

Nei, í alvöru talað eitthvað verður maður að reyna að klóra í bakkann og fá inn skerðinguna sem við höfum orðið fyrir sem minnst höfum á milli handanna. Brems....Nei, ég ætla ekki að tala um ástandið í þessu bloggi.

Ætla hins vegar að láta þennan flakka: Drengur einn bjó vestur á fjörðum. Hann var ekki talin mikil mannvitsbrekka og var sérlega illa að sér í íslensku. Dag nokkurn þurfti hann inn í fjörð og sagði við mömmu sína:" Ég þarf út í firð, viltu keyra mér"? Nei, móðirin gat það ekki. Þá sagði stráksi: "Það er allt í lagi, ég lebb".

Hafið það svo gott um helgina elskurnar mínar.

Rutalskutla stórburgeis.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Takk og velkomið. Búin að svara.

Rut Sumarliðadóttir, 11.10.2008 kl. 12:51

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Takk fyrir bloggvináttuna, Það er sko engin kreppa hjá þér.

Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 11.10.2008 kl. 14:05

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Nei, ég segi eins og konan, nú myndi ég hlægja ef ég væri ekki dauð!

Rut Sumarliðadóttir, 11.10.2008 kl. 14:18

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er eins gott að Bretinn var búinn að gleyma Selvogsbanka, hann eigum við þó skuldlaust

Sigrún Jónsdóttir, 11.10.2008 kl. 15:01

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

 Við leggjum gróðann í þann banka.

Rut Sumarliðadóttir, 11.10.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hahahahahahaha.....er möguleiki á að fá inngöngu í klúbbinn????? Ég á eitthvað drasl í geymslunni enþá, en það er víst eins gott að hafa hraðar hendur  ag vera fyrri til en sumir. Valdhafarnir eru svo fljótir í förum.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 12.10.2008 kl. 11:35

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Haha, takk Sóldís, eins og ég segi þá verðum við stórburgeisar á þessu, það er ekki nema Davíð komist með bláu krumluna í þetta og heimti prósentur!

Rut Sumarliðadóttir, 12.10.2008 kl. 13:12

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Bendi ykkur á bankabyggið.

Eftir að þeir Geiri og Grani, fyrirgefið, afsakið! Ég meinti. þeir Dabbi og Dóri gáfu út veiðileyfi á íslenskt hagkerfi, hef ég reynt að eyða því sem ég á, í að borga skuldir og þvíumlíkt.  Hef sagt það oft og mörgum sinnum: Ég tek ekki þátt í keðjubréfum, píramídasölu eða annarri áhættustarfsemi, enda er ég heigull að upplagi, fæddur kommi og nánös í háttum.

Þetta er nú kannski smágrín, en ég hef drýgt kjöthakkið og bætt í brauðið (sem ég baka alltaf sjálf) bankabyggi og það er ótrúlega gott bæði í brauð grauta og kjötsósur.

Stöndum saman og gerum grín að okkur, en gys að Dabba og Dóra.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.10.2008 kl. 17:59

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Geir og Grani......

Rúni notar byggið en sem meðlæti smakkaði það í sumar, fínt sem slíkt. Imba mín, við fáum bara timburmennina ekkert parý! Takk fyrir tipsið.

Rut Sumarliðadóttir, 13.10.2008 kl. 10:51

10 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Dóra: tóku þeir í Ameríku ekki þátt í kreppunni? Æi, nóg komið af krepputali. Góða skemmtun.

Rut Sumarliðadóttir, 13.10.2008 kl. 10:52

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha kannski að maður þurfi að lebba fljótlega.

Þið eruð greinilega frjóar í hugsun vinkonurnar. Gangi ykkur vel með þetta allt saman.

Jóna Á. Gísladóttir, 14.10.2008 kl. 11:33

12 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Takk dúllan mín, þú gleður mitt hjarta.

Rut Sumarliðadóttir, 14.10.2008 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband