kemur sér vel

Ja hérna, hér. Þetta kæmi sér vel fyrir okkur sem höfum ekki efni á því að deyja. Það veitti ekki af svona happdrætti hér þar sem það kostar minnst hálfa millu að deyja og vera grafinn í vígðri mold. Með tilheyrarndi kaffisamsæti á eftir sem enginn getur verið þekktur fyrir að hafa ekki svona í lokin.

Þetta er auðvitað fyrir utan krónurnar sem fara í kirkjubatteríið af skattpeningunum okkar.

Helst vildi ég verða sett á bátskænu og sleppt á haf út og svo má brenna allt draslið að hætti víkinga. En það yrði að vera á Stafnesinu. Afkomendurnir sætu ekki uppi með skuldir í ofanálag við að missa ástvin.

Held ég reyni að hugsa um lífið restina af deginum.


mbl.is Vann ókeypis jarðarför í happdrætti - vinningurinn er ósóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er nú bærilega sloppið, ef maður kemst af með eins og hálfa millu.

Mér er sagt að útgangsmenn í Reykjavík séu farnir að stunda erfidrykkjurnar, svo það er best að auglýsa eftir á .  Jarðaförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk greiðenda.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.9.2008 kl. 16:11

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég er að miða við þegar pabbi dó fyrir fjórum árum. Þarf að framreikna þetta greinilega.

Rut Sumarliðadóttir, 18.9.2008 kl. 16:23

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Takk Silla mín.

Rut Sumarliðadóttir, 18.9.2008 kl. 17:29

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk fyrir flott ljóð, geimveran þín.  ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.9.2008 kl. 23:12

5 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Hversu vel kemst ég frá þessu ef ég sleppi blesspartýinu ?  Ég er búin að gefa svo mörgum kaffi í gegnum tíðina að mér yrði örugglega fyrirgefið þó ég hætti því um leið og ég gæfi upp öndina.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 18.9.2008 kl. 23:27

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Jóhanna

Rut Sumarliðadóttir, 18.9.2008 kl. 23:33

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Anna og ekki degi fyrr!!!

Rut Sumarliðadóttir, 18.9.2008 kl. 23:34

8 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 19.9.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband