Öryrki á túr/niðurtúr

Nei, ég er ekkert á túr, hvorki þessum mánaðalega né á kojufylleríi. Fannst þetta bara svo flott setning að ég stal henni úr Fréttablaðinu. Þar er höfundur að segja frá vinkonu sinni sem breytti texta Suðmanna "energy og trú" yfir í öryrki á túr.

Ekki það að öryrkjar eru eflaust flestir á túr; niðurtúr. En það er allt í lagi því við vorum að kaupa Glitni. Það er náttúrulega miklu flottara að kaupa banka og gera feita starflokasamninga en að gera fólki kleyft að lifa í þessu landi. Það er ekki smart að vera öryrki.

Það vantar ekki peninga þegar við kaupum banka. En þá vantar til að greiða pöpulnum mannsæmandi laun og rétta hlut kvenna. Eða gera starfslokasamninga við fólk sem setur fyrirtæki á hausin, sei,sei, nei. Við ráðum þá aftur!

Held bara að Stuðmenn hafi séð þetta allt fyrir eða þá að það hefur ekkert breytst  síðan "Sirkus Geira smart" var vinsælt. Nema núna er annar skipper, væri ég að snúa textanum í nútíma aðstæður gæti langið heitið "Hirð Geira harða". Hvílíkur sirkus. Það þyrfti  að hafa góðan trommuslátt í laginu til að dilla sér kröftuglega í dansinum í kringum gullkálfinn.

Er annars nokkur hugsandi maður (kven- og karl-), ekki búinn að fá upp í kok af sirkusnum? Þessi línudans er svo assskoti erfiður fyrir gigtarsjúklinga. En það vantar kannski starfsmann í að leika trúðinn?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Trúðarnir eru ný fleiri en einn í þessum sirkus...nægir þar að nefna Hannes Hólmstein, Árna Johnsen, borgarstjórnarflokkana og BB.

En mikið asskoti kostar mikið inn.........

Haraldur Davíðsson, 29.9.2008 kl. 13:56

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Svo leggst vaskur ofan á !!

Rut Sumarliðadóttir, 29.9.2008 kl. 14:16

3 Smámynd: Gulli litli

Fínn pistill..

Gulli litli, 29.9.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Við erum trúðarnir Rut mín.  Sirkusinn heldur áfram ef við gerum ekki eitthvað róttækt....ég er bara svo mikill trúður að ég veit ekki hvað skal gera

Sigrún Jónsdóttir, 30.9.2008 kl. 10:12

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Halldóra: gangi þér vel í áframhaldinu.

Rut Sumarliðadóttir, 30.9.2008 kl. 12:12

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Takk Gulli snúlli,

Sigrún: Já, við erum trúðarnir, mig skortir líka ráð.

Rut Sumarliðadóttir, 30.9.2008 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband