10% af hvaða upphæð?

Forstjórar stærstu lífeyrissjóða landsins hafa verið með 20-30 milljónir króna í árslaun. Hæstu launin fékk Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, tæpar 30 milljónir króna, eða um 2,5 milljónir á mánuði á síðasta ári. Framkvæmdastjóri Gildis, Árni Guðmundsson, var með 21,5 milljónir króna en 10% lækkun á því nemur rúmum 2 milljónum.

Á þetta að gleðja okkur hin? Hvaða dúsa er þetta? Lækkunin nemur rúmum árslaunum öryrkja. Þau eru uþb. 1. 700.000-. Eftir standa ofurlaun þrátt fyrir það.

Skammist ykkar.


mbl.is Laun stjórnenda helstu lífeyrissjóða munu lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það á eftir að taka þetta fólk langan tíma að koma "niður á jörðina"

Sigrún Jónsdóttir, 10.12.2008 kl. 12:35

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Já og Jesú var fæddur í júní. Þetta er dúsa til að róa okkur.

Rut Sumarliðadóttir, 10.12.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Að minnsta kosti yfirdrættinum

Rut Sumarliðadóttir, 10.12.2008 kl. 19:51

4 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Rut Sumarliðadóttir, 10.12.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þetta er skammarlegt og ein birtingarmynd spillingarinnar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.12.2008 kl. 00:36

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Bíbí, sumir eru jafnari en aðrir.

Rut Sumarliðadóttir, 11.12.2008 kl. 01:32

7 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Ja, kanski er hægt að ráða einn skólaliða eða gangastúlku á sjúkrahús fyrir peninginn. En þetta er rugl allt saman.

Kvitt.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 12.12.2008 kl. 00:33

8 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Síðan eru reiknuð út meðaltalslaun og útkoman er prýðileg.

Skömm.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.12.2008 kl. 13:10

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Einmitt, talnaleikur. Þar ekki mikið til að skekkja mynd af meðaltali. Arg og garg.........

Dúna, lækkunin nemur svona einum launum skólaliða eða gangnastúlkna..

Rut Sumarliðadóttir, 12.12.2008 kl. 13:24

10 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Eigðu góða helgi Dóra mín, kveðjur norður.

Rut Sumarliðadóttir, 12.12.2008 kl. 23:26

11 Smámynd: Sigurbjörg

Greyin eru búin að vera að semja fyrir okkur um svo rosalega há laun í gegnum tíðina þannig að þeir eiga þetta svo mikið skilið ... eða það hlýtur þeim að finnast því þeir skammta sér laun virðist vera.  Þegar Magnús L hætti á sínum tíma borgaði VR fyrir hann milli 20 og 30 milljónir inn í lífeyrissjóðinn svo hann gæti nú kanski fengið sér rjóma út á grautinn, því það er eitthvað sem hinn almenni lífeyrisþegi leyfir sér ekki svo oft, þrátt fyrir þeirra þeirra störf fyrir launþega í gegnum tíðina. 

Sigurbjörg, 15.12.2008 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband